

Starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu 2
Á námskeiðinu er lögð áhersla á starfstengda færni og sjálfsstyrkingu. Haltu áfram í hagnýtu og eflandi nám fyrir þig sem starfar við umönnun á heimilum eða stofnunum.
Skráningarfrestur til 7. september
Um námið
Á fagnámskeiðum Mímis fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er lögð rík áhersla á að efla persónulega og starfstengda færni þína. Við bjóðum upp á símenntun sem eflir þig og veitir þér verkfæri til að takast á við fjölbreytt verkefni í þínu mikilvæga starfi.
Fagnámskeiðin eru sérstaklega ætluð þeim sem starfa við umönnun fólks, hvort sem um er að ræða fatlaða eða aldraða og hvort sem starfið fer fram á einkaheimilum eða stofnunum.
Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar stéttarfélags og getur opnað ný tækifæri til að styrkja þig í starfi.
Námsgreinar
- Almenn starfshæfni – lota 2
- Vinnustaðamenning og sjálfsstyrking – lota 2
- Eldhússtörf og ræsting – lota 2
- Aðstoð og umönnun við athafnir daglegs lífs – lota 2
Fyrir hverja?
Námið er fyrir þau sem vinna við umönnun í heilbrigðis- og félagsþjónustu, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
Námið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu er mælt með að þú hafir hæfni á a.m.k. stigi A2–B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Ef þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.
Inntökuskilyrði
Undanfari þessa námskeiðs er fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu.