

Spænska 1 og 2
Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra spænsku og byrja að tala spænsku!
Á þessu námskeiði tekur þú saman stig 1 og 2.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Þú færð sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
Um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð sig.
Á þessu námskeiði lærir þú bæði stig 1 og 2. Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á fjölbreyttan hátt með áherslu á talað mál og samskipti á spænsku.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Áherslur
- Að læra að tjá þig með einföldum hætti og eiga samskipti á spænsku
- Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám og nýtist í daglegu lífi
- Að kynnast menningu og lífsháttum spænskumælandi landa
- Að læra og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
- Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á spænsku og búa yfir og geta notað hagnýtan orðaforða.
Frekari upplýsingar
- Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
- Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
- Allt námsefni er á rafrænu formi.
- Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgangs að tölvu.
- Þátttaka krefst sjálfstæðis í námi.
- Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
- Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
- Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.