

Að lesa og skrifa á íslensku (A1.1) f. arabískum.
[Upplýsingar á íslensku fyrir neðan]
القراءة والكتابة باللغة الأيسلندية
تعد هذه الدورة بداية جيدة لبدء التعلم. الأيسلندية والتدريب القراءة و الكتابة. وكذلك إلى بناء الثقة
بالنفس لمواصلة التعلم
في هذه الدورة، ستتاح لك الفرصة لتعلم اللغة الأيسلندية بخطى متمهلة في بيئة تعليمية آمنة
وداعمة.
Að lesa og skrifa á íslensku (A1.1)
Námskeiðið er gott upphaf til að byrja að læra íslensku og þjálfa lestur og skrift. Einnig til að byggja upp sjálfstraust til að halda áfram að læra.
Á námskeiðinu færð þú tækifæri til að læra íslensku hægt og rólega í öruggu og styðjandi námsumhverfi.
Kennarinn talar arabísku
Um námið
Námskeiðið Að lesa og skrifa á íslensku er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku, vilt læra hægar og þarft þjálfun í að lesa og skrifa latneska stafrófið. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að læra vel íslenska stafrófið og þjálfa framburð auk þess að læra grunnorðaforða daglegs máls og einfalda setningagerð.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og ólíkar leiðir til að æfa alla þætti tungumálanáms. Þessir þættir eru skilningur, lestur, skrift og talþjálfun með áherslu íslensku í daglegu lífi og sjálfsstyrkingu til að halda áfram að læra tungumálið.
Þjálfun í rafrænni færni er hluti af námskeiðinu þar sem þú færð upplýsingar um og tækifæri til að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum. Fræðslu um íslenskt samfélag er fléttað inn í námskeiðið eftir því sem hentar hópnum.
Námskeiðið er kennt á íslensku og arabísku.
Að lesa og skrifa á íslensku er nám á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenskt menntakerfi og er byrjendanámskeið í íslensku á forstigi og á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað að hluta auk sérhæfðs efnis til þjálfunar í framburði, lestrar- og skriftarkennslu, myndefnis, leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi og Orð eru ævintýri – rafbók | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Áherslur
- Læra stafrófið og framburð: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku og þjálfun í íslenska hljóðkerfinu.
- Þú byggir upp grunnorðaforða með því að nota myndir og orð á áhrifaríkan hátt.
- Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
- Þú færð þjálfun í grunnatriðum í lestri og skrift einfaldra orða og setninga. Þú æfir einnig að skrifa einföld orð og grunn persónupplýsingar á rafrænan máta.
- Þú æfir þig að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum.
- Málfræði er kynnt á mjög einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
- Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.