Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Leikskólastarfsfólk – Fagnámskeið 1 – Blandað nám

Á námskeiðinu er lögð áhersla á tölvuleikni, samskipti og sjálfseflingu. Hagnýtt og eflandi nám fyrir starfsfólk leikskóla sem vill vaxa, læra og blómstra.

Um námið

Á fagnámskeiðum Mímis tekur þú þátt í fjölbreyttum verkefnum sem veita þér verkfæri og kunnáttu til að takast á við persónuleg og starfstengd verkefni.

Við bjóðum upp á símenntun sem eflir þig og getur opnað ný tækifæri í lífi og starfi.

Námsþættirnir skiptast í tvo meginflokka, persónulega og starfstengda færni.

Persónuleg og almenn færni

  • Sjálfstyrking og samskipti: Efldu sjálfstraust þitt og samskiptafærni.
  • Námstækni: Fáðu í hendurnar skýr og áreiðanleg verkfæri til að læra á skilvirkari hátt.
  • Tölvuleikni: Styrktu faglega og hagnýta þekkingu þína á tölvum og stafrænum lausnum.

Starfstengd og fagleg færni

  • Uppeldi leikskólabarna: Dýpkaðu skilning þinn á lykilþáttum í uppeldi barna.
  • Listastarf með börnum: Fáðu innblástur og aðferðir til að efla sköpunargáfu barna.
  • Fjölmenningarlegur leikskóli: Lærðu að mæta þörfum barna úr fjölbreyttum menningarheimum.
  • Umhverfismennt: Öðlastu þekkingu og færni til að innleiða umhverfisvitund í leikskólastarfi.

Fyrir hverja?

Námið er fyrir þau sem starfa á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs.

Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur mælum við með því að þátttakendur hafi hæfni á a.m.k. stigi A2-B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Ef að þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.

Hefst
14. sept. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Verð
34.450 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar