Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú

Vinnur þú á leikskóla eða í grunnskóla?

Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi.

Þetta er leið fyrir þig til að efla þig í starfi og skapa ný tækifæri í fjölbreyttu starfsumhverfi með börnum.   

Um námið

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðin námsbraut fyrir þau sem starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi.

Námið er hagnýtt, tengt skólastarfi og kennt með það að leiðarljósi að styrkja þig í núverandi starfi eða í framtíðarhlutverki innan skólakerfisins.

Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þroska og þörfum barna: Lærðu meira um það sem þroskar og mótar börn.
  • Mikilvægi leiks í námi og þroska: Fáðu þekkingu á því hvernig leikur er uppbyggileg leið til náms og þroska.
  • Áhrifaríkum samskiptum og samstarfi: Þjálfaðu fagleg, skýr og árangursrík samskipti og samvinnu.
  • Sterkari fagvitund og auknu sjálfstrausti: Byggðu upp sjálfstraust í þínu starfi.

Að námi loknu útskrifast þú sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi með viðurkennda menntun sem nýtist beint í starfi og styrkir stöðu þína til framtíðar.

Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.

Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.

Fyrir hverja?

Námið er fyrir þau sem starfa í  leik- og grunnskólum.

 

 

Hefst
26. ágúst 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar