Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og verktaka sem selja út efni, vinnu og tæki.

Markmið þess er að kenna þátttakendum útreikning á nauðsynlegri álagningu á tilboðs- og tímavinnu.

Fjallað er um notkun forritsins TAXTA IV en með því er auðvelt að sjá m.a. hvort við erum með nægilega álagningu inni í útseldri vinnu, vélum og tækjum, hvort borgi sig að bæta við starfsfólki í stað eftirvinnu, hversu mikla fjárfestingu reksturinn ber, hvað þarf að rukka fyrir háþrýstidæluna, borðsögina, gröfuna, körfubílinn, vinnupallana, ekinn kílómetra o.s.frv.  Þátttakendur vinna verkefni sem fógið er í að setja inn inn tölur úr síðasta ársreikningi og skrá starfsmenn ásamt vélum sem þeir vill verðleggja sérstaklega inn í TAXTA. Þegar það hefur verið gert liggur niðurstaðan fyrir þá sést hver raunverulegur kostnaður er.

Á námskeiðinu er kennd notkun á TAXTA ásamt reiknilíkönum í excel sem hvort tveggja er innifalið í námskeiðsgjaldinu.  Þátttakendur eiga að mæta með tölvu á námskeiðið.

Hefst
22. sept. 2025
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar