Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Ölfus

VISS, vinnu og hæfingarstöð í Þorlákshöfn óskar eftir deildarstjóra

VISS, vinnu og hæfingarstöð, óskar eftir að ráða deildarstjóra í 80% stöðu.

VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Unnið er að því að styðja og efla starfsmenn í vinnu og virkni. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“.

Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

· Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir, sviðsstjóri, [email protected] og Eyrún Hafþórsdóttir, deildarstjóri velferðarþjónustu, [email protected] , í síma 480-3800

· Umsóknum skal skilað rafrænt á heimasíðu Ölfuss www.olfus.is

Helstu verkefni og ábyrgð

·      Daglegt utanhald um rekstur og starfsemina

·      Starfsmannahald

·      Móta stefnu og markmið þjónustunnar

·      Verkefnaöflun og að verkefni sé við hæfi hvers og eins

·      Aðstoð við fatlað fólk í athöfnum daglegs lífs

Helstu markmið starfsins

·      Faglegt starf með fötluðu fólki

·      Leiðbeina, styðja og hvetja

·      Skapa öryggi og vellíðan á vinnustað

·      Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks

Menntunar- og hæfniskröfur

·      Menntun í þroskaþjálfun eða önnur menntun sem nýtist í starfi

·      Reynsla í starfi með fötluðu fólki

·      Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi

·      Leiðtoga- og skipulagshæfileikar

·      Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

·      Hæfni í mannlegum samskiptum

·      Jákvæðni og góð þjónustulund

·      Góð tölvukunnátta

Auglýsing birt9. júlí 2025
Umsóknarfrestur10. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurvör 3, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar