Arnarlax ehf
Arnarlax ehf
Arnarlax ehf

Vilt þú vinna með líffræði, tækni og daglegar ákvarðanir sem hafa áhrif á vöxt og velferð laxa?

Arnarlax leitar að áhugasömum og ábyrgum fóðrara (e. Feeder) til liðs við OPC teymið okkar á Bíldudal. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem vill taka þátt í að styðja við heilbrigðan vöxt og góðan framleiðsluárangur í sjóeldi.

Sem fóðrari gegnir þú lykilhlutverki í að fylgjast með og stýra fóðrun fisksins frá því að seiðin eru sett í sjó og þar til fiskurinn nær sláturstærð. Starfið felur því í sér meira en að dreifa fóðri, það snýst einnig um að skilja samspil fisks, umhverfis og tækni til að styðja við góðan árangur í framleiðslu.

Starfið krefst góðrar yfirsýnar, nákvæmni og hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir byggðar á líffræðilegum og rekstrarlegum upplýsingum. Þú verður hluti af faglegu teymi þar sem samstarf, ábyrgð og stöðugar umbætur eru mikilvægur hluti af daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg fóðrun og eftirlit með laxinum okkar
  • Skráning, skjölun og greining gagna
  • Samskipti og samhæfing við sjódeild
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Jákvæðni og stundvísi
  • Greiningarhæfni
  • Góð tölvukunnátta
  • Íslensku og/eða Enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Strandgata 1, 465 Bíldudalur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar