Lyfja
Lyfja
Lyfja

Við leitum að tveimur lyfsölum í Lyfjuliðið

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum lyfjafræðingum í tvær stöður lyfsala í verslanir okkar í Smáralind og á Garðatorgi.

Sem lyfsali hjá Lyfju ert þú leiðtogi sem berð ábyrgð á að reka apótekið af fagmennsku og metnaði – bæði hvað varðar lyf, vörur í verslun og teymið þitt. Þú skapar faglega, þjónustumiðaða og markmiðadrifna vinnustaðamenningu og sérð til þess að viðskiptavinir upplifi persónulega þjónustu og góða ráðgjöf í takt við stefnu Lyfju og samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir manneskju með brennandi áhuga á heilbrigðisþjónustu sem vill hafa áhrif – á viðskiptavini, teymi og árangur Lyfju. Þú verður hluti af öflugum stjórnendahópi Lyfju sem hittist reglulega, styður við hvert annað og fær sérstaka leiðtogaþjálfun til að vaxa í hlutverki sínu.

Við leitum að lyfjafræðingi sem býr yfir:

  • Leiðtogahæfni og færni í að ná fólki með sér
  • Jákvæðni, drifkrafti og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Áreiðanleika, metnaði og góðri skipulagsfærni
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Skilningi og áhuga á rekstrarumhverfi og verklagi apóteka
  • Að lágmarki tveggja ára starfsreynslu í apóteki
  • Háskólaprófi í lyfjafræði og gildu starfsleyfi

Lyfja Smáralind: Opið kl. 11-19 virka daga, kl. 11-18 á laugardögum og kl. 12-17 á sunnudögum.

Lyfja Garðatorgi: Opið kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum.

Nánari upplýsingar veita Þórbergur Egilsson, forstöðumaður verslanasviðs | [email protected] eða Ásdís Eir Símonardóttir, forstöðumaður mannauðs og menningar | [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og auka lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Auglýsing birt29. september 2025
Umsóknarfrestur12. október 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Garðatorg 5, 210 Garðabær
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar