Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Sauðárkróki - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í Lyfju Sauðárkróki. Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðgjöf til viðskiptavina um val og notkun á lausasölulyfjum og öðrum vörum.


Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli


Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur


Starfið:

Vinnutími er frá 10:00-18:00 alla virka daga og þriðja hvern laugardag frá 11:00-13:00.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðþjófur Sigurðsson, lyfsali Lyfju Sauðárkróki í síma 453-5700 og á [email protected]


Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt10. september 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar