Yeoman ehf.
Yeoman ehf.

Verslunarstjóri

Yeoman ehf. óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulipran einstakling í starf verslunarstjóra í verslun sína að Laugavegi 7. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður og jákvæður með góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund. Um fullt starf er að ræða á skapandi og fjölbreyttum vinnustað.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Daglegur rekstur verslunar
  • Sala og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini
  • Umsjón með netpöntunum og almennt utanumhald þeirra
  • Mannaforráð og dagleg starfsmannamál
  • Gerð vaktaplana
  • Útstillingar og önnur almenn verslunarstörf
  • Þátttaka í vöruinnkaupum með innkaupastjóra
  • Aðstoð við samfélagsmiðla

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af verslunarstjórnun eða sambærilegu starfi
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 25 ára aldri.
  • Áhugi á tísku, vöruþekking og hæfni í útstillingum er mikill kostur
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og stundvísi
  • Almenn tölvukunnátta, þekking á Shopify og samfélagsmiðlum er kostur

Yeoman ehf. rekur verslunina Yeoman á Laugavegi 7 í Reykjavík og netverslunina hilduryeoman.com. Yeoman framleiðir fatnað og aukahluti undir merkinu Hildur Yeoman en verslunin hefur skapað sér sess á íslenskum markaði sem áfangastaður fyrir fagurkera og hefur hlotið verðskuldaða athygli hér heima og erlendis.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 7
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FatahönnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ShopifyPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar