

Verslunarstjóri hjá Bestseller
Bestseller á Íslandi auglýsir eftir verslunarstjóra. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á fötum og hefur metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu. Hjá Bestseller starfar gríðarlega flottur hópur af skemmtilegu og færu fólki sem elskar fötin frá vörumerkjum Bestseller. Við vinnum í góðri samvinnu og leggjum mikinn metnað í að veita frábæra og faglega þjónustu. Verslunarstjóri þarf að geta unnið vel í hóp og verið fyrirmynd fyrir starfsmenn verslunarinnar þegar kemur að þjónustu og vinnubrögðum.
Aðili þarf að búa yfir leiðtogahæfileikum og geta verið með góða umsjón með versluninni og starfsfólki hennar.
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er eftir vaktaplani.
Vinnutími fer fram á opnunartíma Smáralindar og Kringlunnar.
Virka daga frá kl. 11-19 í Smáralind og 10-18:30 í Kringlunni, laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga 12-17.
- Samskipti og stjórnun starfsmanna í verslun
- Uppsetning og ásýnd verslunar
- Ábyrgð á vaktaplönum í verslun
- Veita viðskiptavinum frábæra þjónustu
- Liðsinna viðskiptavinum um val á vörum
- Áfyllingar og frágangur á vörum í verslun og lager
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum
- Rík þjónustulund og sölugleði
- Jákvæðni, metnaður og framtakssemi
- Áhugi á tísku
- Góð íslenskukunnátta
- Mjög góður starfsmannaafsláttur af vörum Bestseller
Enska
Íslenska










