Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Selfossi - Umsjónarmaður verslunar

Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf umsjónarmanns verslunar í Lyfju Selfossi. Umsjónarmaðurinn tekur þátt í daglegu starfi apóteksins, skapar góða upplifun fyrir viðskiptavini og styður teymið sitt í faglegu og hlýlegu umhverfi. Starfið heyrir undir lyfsala og felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem þjónusta, samskipti og yfirsýn eru lykilatriði. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með verslun og daglegum rekstri
  • Að vera fyrirmynd í þjónustu, framkomu og fagmennsku
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Yfirsýn yfir skipulag verslunar, framstillingar og lager

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund, jákvætt viðmót og faglega framkomu
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góða samskiptahæfni og áhuga á mannlegum tengslum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Góða almenna tölvukunnáttu
  • Reynslu af verslunarstörfum (kostur)

Starfið:

Vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar:

  • Virkir dagar 09:00-18:00
  • Laugardagar 10:00-14:00
  • Sunnudagar 11:00-14:00

Umsækjandi þarf að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu og geta hafið störf sem fyrst.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Lyfja rekur 42 apótek og útibú víðs vegar um landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Frestur til að sækja um er til og með 15. febrúar en unnið verður úr umsóknum jafn óðum og þær berast.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Hlín Ólafsdóttir, lyfsali Lyfju Selfossi í síma 482-3000 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 44, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar