

Lyfja Smáratorgi – Sjúkraliði í hjúkrunarþjónustu
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum sjúkraliða til starfa í hjúkrunarþjónustu Lyfju á Smáratorgi. Starfið felst í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini ásamt umsjón með hjúkrunarvörum og almennum afgreiðslustörfum. Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar hópur hjúkrunarfræðinga og sérhæfðs starfsfólks sem sinnir þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað.
Hlutverk og ábyrgð:
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina um val á heilsu- og hjúkrunarvörum.
- Hjúkrunarþjónusta, þar á meðal heilsufarsmælingar.
- Umsjón með lager hjúkrunarvara.
- Almenn afgreiðslustörf.
- Önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu.
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi.
- Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund.
- Áhuga á heilsu og vellíðan.
- Getu til að vinna í teymi.
Starfið:
Um hlutastarf er að ræða. Vinnutími er frá 08:00-16:00, 2-3 virka daga í viku með möguleika á frekari afleysingum.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Ingibjörg Arnardóttir, lyfsali Lyfju Smáratorgi, [email protected] og
Hrafnkatla Valgeirsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska










