
Joserabúðin
Í yfir 70 ár hefur Josera verið þýskt, meðalstórt fjölskyldufyrirtæki frá Odenwald sem sérfræðingur í fyrsta flokks gæludýrafóðri. Í gegnum árin hefur Josera staðið fyrir sjálfbærum aðgerðum í þágu starfsmanna, viðskiptavina og umhverfisins.
Með Josera gæludýrafóðri getur þú verið viss: Við erum sérfræðingar í fyrsta flokks gæludýrafóðri með meira en 75 ára reynslu og sérþekkingu. Ef þú velur að fóðra gæludýrið þitt með vörunum okkar, þá færðu fóður sem er búið til af ástríðu. Þessi orð draga saman skuldbindingu okkar og loforð um gæði Super Premium uppskriftanna, en eftir þeim búum við til hágæðanæringu fyrir hundana þína og kettina. Fjölbreytt vöruúrval okkar sér ferfættu vinum þínum fyrir hágæðanæringu á öllum æviskeiðum. Sjáðu það það sjálf(ur).
Vöruþróun - aðeins það besta fyrir gæludýrið þitt
Hágæðafóður þarf ekki aðeins að bragðast vel, það þarf líka að vera auðmeltanlegt og mæta þörfum gæludýrsins þíns. Teymi næringarfræðinga og sérfræðinga vinnur að því að þróa hágæðauppskriftir fyrir vörurnar okkar, byggt á nýjustu upplýsingum. Sérfræðingarnir okkar eru alltaf í fremstu röð við þróun uppskriftanna líta þeir ávallt til nýjustu vísindarannsókna viðurkenndra dýranæringarfræðinga.

Joserabúðin - verslunarstjóri
Joserabúðin leitar að öflugum og þjónustulunduðum verslunarstjóra. Verslunin sérhæfir sig í hunda- og kattafóðri og ráðgjöf um vöruval og notkun.
Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem vill taka ábyrgð á daglegum rekstri og byggja upp sterk og jákvæð samskipti við viðskiptavini og endursöluaðila. Við leitum að aðila til að vera sýnilegur leiðtogi sem setur skýr mælanleg markmið og viðhefur gott skipulag með jákvæðni og þjónustulund að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina um vöruval og vörunotkun
- Dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri verslunar
- Þjálfun starfsfólks og eftirfylgni með starfsmannamálum
- Tryggja fagmannlega ásýnd verslunar og snyrtimennsku
- Halda uppi góðum og virkum samskiptum við viðskiptavini
- Skipuleggja söluferðir og heimsóknir til endursöluaðila
- Vinna þétt með öðrum sölufulltrúum að samræmingu starfa og aukinni sölu
- Sinna almennri símsvörun og stuðla að faglegri og hlýlegri upplifun viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Áhugi og reynsla af gæludýrum og skilningur á þörfum þeirra og eigenda
- Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að leiða og þjálfa starfsfólk
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Metnaður til að setja markmið og vinna markvisst að árangri
- Talnagleggni og góð tölvukunnátta
- Hæfni til að hafa yfirsýn yfir birgðir og tryggja rétta birgðastöðu
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ögurhvarf 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Ræstingar / Cleaning
Skógasafn

Deildarstjóri málningadeildar - BYKO Granda
Byko

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR

Lyfja Selfossi - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Verslunarstjóri
Síminn

Sölumaður í varahlutaverslun
Kraftvélar ehf.

Join our team - Keflavík Airport!
SSP Iceland

Afgreiðsla í fiskbúð
Fylgifiskar ehf

Bætiefnabúllan - Fullt starf í verslun (100%)
Bætiefnabúllan

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Timburafgreiðsla - BYKO Suðurnes
Byko