Bláskógaveita
Bláskógaveita

Verkstjóri veitna

Vegna mikilla umsvifa og framkvæmda óskar Bláskógaveita eftir að ráða verkstjóra veitna.

Um er að ræða100% starf, en auk þess þarf starfsmaður að vera tilbúinn til að ganga bakvaktir samkvæmt nánara skipulagi og sinna útköllum, komi upp bilanir eða rekstrartruflanir. Vegna þess er búsetta á dreifisvæði veitunnar eða í næsta nágrenni æskileg.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkstjóri veitna sinnir eftirfarandi verkefnum í samráði við veitustjóra:

·         daglegum rekstri, umsjón og viðhaldi veitukerfa

·         nýframkvæmdum við vatnsöflun, veitukerfi og mannvirki þeim tengd

·         heimlögnum og tengingum

·         verkstjórn og stýringu verktaka

·         vinnu við áætlanagerð

·         ber ábyrgð á öryggisþáttum

·         er staðgengill veitustjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         menntun sem nýtist í starfi, t.d. í málmiðngreinum

·         reynsla og þekking á sviði veitna og framkvæmda er æskileg

·         færni í mannlegum samskiptum

·         færni til að stjórna og leiðbeina

·         frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð

·         góð almenn tölvukunnátta

·         ökuréttindi

·         suðu- og vinnuvélaréttindi eru kostur

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykholt hitaveitulóð , 801 Selfoss
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Laugarás 167381, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.BlikksmíðiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LogsuðaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.PípulagnirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar