
Verksmiðjustjóri
Ískalk leitar að öflugum og drífandi verksmiðjustjóra til að leiða uppbyggingu og daglegan rekstur verksmiðju félagsins í Súðavík. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill taka virkan þátt í að þróa og móta framleiðslustarfsemi í vaxandi fyrirtæki með sterka framtíðarsýn.
Í starfinu felst umsjón með skipulagi, framleiðslu og rekstri verksmiðjunnar auk starfsmannahaldi, ábyrgðar á leyfismálum, gæðastjórnun og öryggi. Leitað er að leiðtoga með góða skipulagshæfileika, reynslu af framleiðslu og hæfni til að vinna með ólíkum hagaðilum í kraftmiklu umhverfi.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Skipulagning og mönnun vakta
- Ábyrgð á starfsleyfum bæði fyrir efnistöku og verksmiðju
- Yfirumsjón með efnistöku úr sjó
- Samskipti við hagaðila
- Ábyrgð og umsjón með viðhaldi
- Tryggja að unnið sé eftir gæðahandbók og öryggisreglum
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á framleiðslustörfum
- Reynsla af verkstjórn og verksmiðjustjórnunun er nauðsyn
- Þekking á rekstri, gæða- og öryggismálum
- Skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Ískalk sérhæfir sig einkum í hráefnisöflun, þurrkun, vinnslu og pökkun á kalkþörungum. Afurðir félagsins eru fóðurbætir og hráefni til vinnslu fæðubótarefna til manneldis. Auk þess er framleiðsla á þurrkuðum kalkþörungum til vatnshreinsunar/steinefni úr kalkþörungum í dauðhreinsað vatn vatnsveitna í Evrópu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Frekari upplýsingar varðandi starfið veita Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska










