FSRE
FSRE

Verkefnastjóri - viðhaldsáætlanir

Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) er viðhald stærsta fasteignasafns landsins skipulagt af fagmennsku og fyrirhyggju. Nú leitum við að verkefnastjóra í teymi sem greinir ástand og viðhaldsþörf eigna ríkisins og forgangsraðar verkefnum svo eignir haldi verðgildi sínu og nýtist sem best.

Sem verkefnastjóri stýrir þú úttektum á ástandi fasteigna, gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald, þróun á verklagi og viðmiðum við ástandsmat. Þú berð ábyrgð á útboðum og samningum um ástandsmat og vinnur náið með eignastýringu, þjónustuborði og forsvarsmönnum stofnana. Safnið telur 530 þúsund m² í 380 eignum um allt land, svo verkefnin eru fjölbreytt og ná til flestra sviða samfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórn við greiningu á viðhaldsþörf eigna ríkisins
  • Umsjón með úttektum á ástandi fasteigna, mati á viðhaldsverkefnum og forgangsröðun þeirra
  • Gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald eigna
  • Þróun verklags og viðmiða við gerð ástandsmats
  • Gerð útboðsgagna, innkaup og rekstur samninga um ástandsmat í samvinnu við innkaupasérfræðinga
  • Samstarf við eignastýringu um forgangsröðun eigna og verkefna
  • Samstarf við þjónustuborð um greiningu beiðna
  • Samskipti við forsvarsmenn stofnana og notenda í samráði við viðskiptastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð þjónustulund
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
  • Lausnamiðað viðhorf og hæfni í lausn ágreinings
  • Góð færni í að forgangsraða verkefnum og skila árangri í kviku starfsumhverfi
  • Stafræn færni, geta til að vinna með gögn og læra á ný tölvukerfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti

Eftirfarandi telst til kosta

  • Víðtæk reynsla í mannvirkjagerð
  • Iðnmenntun og reynsla af viðhaldsframkvæmdum
  • Reynsla í umsjón fasteigna, útboðsmálum, innkaupum og rekstri samninga
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar