

Verkefnastjóri í Skólabúðum UMFÍ
Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði, sem starfræktar eru af UMFÍ, óska eftir að ráða metnaðarfullan og skipulagðan verkefnastjóra til starfa.
Verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og samskiptum við skóla vegna komu hópa, hefur umsjón með dagskrá búðanna og leigu til annarra hópa og gætir þess að aðstaða og öryggi séu í lagi fyrir starfsemina. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf sem reynir á skipulagshæfni, frumkvæði og góða samskiptahæfni.
• Öll samskipti við kennara þeirra hópa sem koma í Skólabúðirnar.
• Skipulag og röðun skóla fyrir næsta skólaár, þ.m.t. útsending og móttaka umsóknarforma.
• Yfirumsjón með sumar og helgarleigu, þ.m.t. bókanir og vaktaskipulag starfsfólks.
• Umsjón með tímum í dagskrá, í samstarfi við samstarfsfólk og yfirmann.
• Eftirlit með því að hús og sundlaug séu í lagi áður en hópar koma á staðinn.
• Árleg skýrslugjöf um starfsemi Skólabúðanna.
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar, verkefnisstjórnunar, uppeldis-, félags- eða tómstundastarfa.
• Reynsla af skipulagsvinnu og verkefnastjórnun er æskileg.
• Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun
• Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að taka ákvarðanir.
• Skipulagshæfni og nákvæmni, sérstaklega við röðun skóla og vaktaplön.
• Frumkvæði til að afla sér þekkingar og miðla henni áfram til samstarfsfólks.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1.janúar 2026.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúða UMFÍ
Sími: 861 3379
Netfang: [email protected]
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ
Netfang: [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaðar gætt.
Íslenska




