Six Rivers Iceland
Six Rivers Iceland

Verkefnastjóri fasteigna og framkvæmda

Six Rivers Iceland leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkefnastjóra fasteigna og framkvæmda á Vopnafirði.

Fram undan eru umfangsmikil uppbyggingar- og framkvæmdaverkefni hjá félaginu, þar á meðal nýbyggingar við Hofsá og Hafralónsá. Stór hluti starfsins felst í að fylgja þessum verkefnum eftir fyrir hönd félagsins, sinna reglulegu eftirliti með framkvæmdum og tryggja góða yfirsýn yfir framvindu, kostnað og næstu skref.

Samhliða því mun viðkomandi hafa umsjón með fasteignum, tækjum og ökutækjum félagsins og taka þátt í gerð og eftirfylgni fjárfestinga- og viðhaldsáætlana (CAPEX).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit og eftirfylgni með nýbyggingum og öðrum framkvæmdaverkefnum, einkum við Hofsá og Hafralónsá.
  • Afla og yfirfara tilboð, fylgja kostnaðaráætlunum eftir og tryggja að verk séu unnin í samræmi við samþykkt umfang, ásamt reglulegri eftirfylgni og skýrslugjöf um stöðu verkefna. 
  • Vera tengiliður félagsins við arkitekta, verkfræðinga, verktaka, birgja og aðra aðila sem koma að framkvæmdum.
  • Taka þátt í gerð og eftirfylgni CAPEX-áætlana, kostnaðaráætlana og fjárhagsáætlana vegna framkvæmda og viðhalds.
  • Umsjón með fasteignum félagsins, auk búnaðar, tækja og ökutækja, þ.m.t. gerð og eftirfylgni viðhaldsáætlana og skipulagningu reglubundins og fyrirbyggjandi viðhalds.
  • Umsjón með rekstrarhandbókum og verklagsreglum fyrir veiðihús og aðrar fasteignir.
  • Eftirlit með orkunotkun og öðrum rekstrarkostnaði fasteigna og leit að tækifærum til hagræðingar.
  • Virk þátttaka í úrlausn daglegra viðhalds- og rekstrarmála eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist við verkefnastjórnun, framkvæmdir, byggingariðnað, fasteignarekstur eða sambærileg verkefni.
  • Reynsla af framkvæmdum, framkvæmdaeftirliti eða verkefnastjórnun er mikill kostur.
  • Góð almenn tæknileg þekking á fasteignum, byggingum og viðhaldi.
  • Reynsla af kostnaðaráætlunum, fjárhagsáætlunum og/eða CAPEX er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og geta til að halda skipulega utan um gögn, áætlanir og skýrslugjöf.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, ábyrgð og góð samskiptahæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Ökuréttindi.
Auglýsing birt17. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vopnafjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar