GG Verk ehf
GG Verk ehf
GG Verk ehf

Verkefnastjóri á sviði mannauðsmála - afleysingar

GG Verk leitar að öflugum og skipulögðum verkefnastjóra á sviði mannauðsmála til að leiða og þróa mannauðsmál fyrirtækisins næstu mánuði. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

Um starfið

Um er að ræða tímabundið fullt starf (í 8-9 mánuði) með mikilli ábyrgð, breidd og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skipulag, starfsumhverfi og árangur okkar. Viðkomandi mun starfa beint undir framkvæmdastjóra þjónustu og samskipta.

Starfið er fjölbreytt og krefst bæði yfirsýnar, framkvæmda- og samskiptahæfni. Verkefnastjóri á sviði mannauðsmála vinnur náið með framkvæmdastjórn, verkefnastjórum og stoðsviðum fyrirtækisins.

Helstu verkefni:

  • Dagleg umsýsla og þróun mannauðsmála
  • Ráðningarferli og móttaka nýrra starfsmanna
  • Skipulagning og samræming vaktaplans, orlofs og skipulag mannauðs
  • Umsýsla veikindaskráninga og tengdra ferla
  • Þátttaka í mælingum á frammistöðu og uppfærslu BI mælaborðs
  • Stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum
  • Umsýsla vinnufatnaðar og öryggisbúnaðar
  • Umsjón með leiguíbúðum fyrir erlent starfsfólk
  • Samstarf við fjármálasvið vegna launatengdra mála
  • Skipulagning viðburða og starfsmannatengdra verkefna
  • Þátttaka í þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði mannauðsmála

Starfið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Hefur reynslu af mannauðsmálum, rekstri eða verkefnastjórnun
  • Er skipulagður, lausnamiðaður og sjálfstæður í starfi
  • Býr yfir sterkri samskiptahæfni , er áræðin/n og getur tekið ákvarðanir hratt
  • Hefur þekkingu á meðferð trúnaðarupplýsinga
  • Talar og ritar góða íslensku og ensku
  • Hefur framúrskarandi áhuga á fólki, vinnur vel í teymi og er lausnamiðaður
  • Þekkir og nýtir stafrænar lausnir og gervigreind í starfi
  • Hefur mjög góða færni í helstu tölvukerfum
  • Þrífst í hraðskreiðu og fjölbreyttu umhverfi

Reynsla af mannauðskerfum á borð við Kjarna og Tímon er kostur.

Um GG Verk

GG Verk er eitt stærsta byggingarfyrirtæki landsins og verður 20 ára á árinu. Fyrirtækið er ISO 9001 og jafnlaunavottað og leggur ríka áherslu á fagmennsku, skipulag og ábyrgð í öllum verkum.

Við vinnum í alþjóðlegu umhverfi þar sem fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks er styrkur. Við byggjum ekki aðeins vönduð mannvirki, heldur byggjum við saman sterkt starfs- og þekkingarumhverfi. Árlegar starfsánægjumælingar sýna að GG er eftirsóttur vinnustaður, þar sem fólk er sett í fyrsta sæti.

Umsókn

Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá og kynningarbréf í gegnum Alfred.is. Nánari upplýsingar veitir Brynhildur S. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og samskipta ([email protected]),

Umsóknarfrestur er til 15. mars en umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt24. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Turnahvarf 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar