VERDI Ferðaskrifstofa
VERDI Ferðaskrifstofa
VERDI Ferðaskrifstofa

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel

Verdi Travel leitar að drífandi, skipulögðum og tæknilega sterkum einstaklingi til að starfa á sölu- og markaðssviði fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér sölu og tilboðsgerð fyrir hópaferðir, verkefnastjórnun, markaðssetningu og þróun nýrra viðskiptatækifæra. Sérstök áhersla verður á uppbyggingu og vöxt hópaferðadeildar Verdi Travel.

Helstu verkefni

  • Sala, skipulagning og tilboðsgerð fyrir hópaferðir og stærri verkefni.
  • Öflun nýrra viðskiptavina og þróun nýrra viðskiptatækifæra.
  • Eftirfylgni með söluverkefnum frá fyrstu fyrirspurn til framkvæmdar.
  • Hugmyndavinna og framkvæmd markaðsherferða.
  • Gerð og hönnun kynningar- og markaðsefnis.
  • Umsjón með og uppfærsla á heimasíðu og gagnagrunnum.
  • Notkun stafrænna lausna til að styðja við sölu- og markaðsstarf.
  • Þróun vinnuferla til að auka skilvirkni og árangur.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi með reynslu af sölu og þjónustu, góða tölvu- og tæknikunnáttu og sterka færni í Microsoft 365, sérstaklega Excel og Outlook. Kunnátta í Canva og vefumsjónarkerfum er kostur, sem og reynsla af gervigreindarlausnum.

Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður, frumkvöðull, skipulagður, nákvæmur og lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og reynsla af ferðaþjónustu er kostur.

Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Silfursmári 6
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar