Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Vélvirki á vélaverkstæði Orku náttúrunnar

Viltu vinna við vélbúnaðinn sem heldur virkjunum okkar gangandi?

Við hjá Orku náttúrunnar leitum að öflugum vélvirkja á vélaverkstæði virkjana okkar.
Í hlutverkinu færðu tækifæri til að vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni í framúrskarandi starfsumhverfi.

Starfið snýr að viðhaldi, viðgerðum og endurbótum á vélbúnaði og framleiðslutengdum kerfum í virkjunum ON. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá reglubundnu viðhaldi og bilanagreiningum yfir í upptektir og nýframkvæmdir.

Þú verður hluti af öflugu fagteymi og vinnur náið með samstarfsfólki þínu á verkstæðinu, verkstjórum, ábyrgðaraðilum, sérfræðingum, rekstri og verktökum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér að:

  • sinna reglubundnu vélaviðhaldi, eftirliti og viðgerðum
  • greina bilanir og frávik og taka þátt í úrlausn þeirra
  • vinna að upptektum og viðgerðum á vélbúnaði og vélasamstæðum
  • taka þátt fjölbreyttum verkefnum
  • vinna samkvæmt öryggis-, umhverfis- og gæðakröfum ON
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að vélvirkja sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreyttu starfsumhverfi og vinnur verk sín af fagmennsku.

Á meðal þeirra eiginleika sem við leitum eftir eru:

  • Góð verkleg færni ásamt þekkingu á vélbúnaði og vélaviðhaldi
  • Rík öryggisvitund, hæfni til að meta áhættu og að vinna samkvæmt öryggis- og umhverfiskröfum
  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til að taka þátt í góðu samstarfi
  • Samskiptafærni og frumkvæði
  • Sveinspróf í vélvirkjun
  • Þekking á viðhaldskerfum á borð við DMM og reynsla af sambærilegu starfsumhverfi er kostur

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hellisheiðarvirkun
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vélvirkjun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar