
Hefur þú áhuga á vél- og kælikerfum?
atNorth er í áframhaldandi vexti á Akureyri og leitar að tæknifólki sem vill taka þátt í uppbyggingu og rekstri öflugra gagnavera.
Við viljum heyra frá vélstjórum, vélvirkjum, pípurum, kælitæknum og öðrum með iðn- eða tæknimenntun og sterkan tæknilegan bakgrunn.
Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.
-
Þú kemur að rekstri og viðhaldi mikilvægra tæknikerfa í gagnaverinu okkar á Akureyri. Þar á meðal eru loft- og vatns- kælikerfi fyrr öflugan tölvu- og gervigreindarbúnað, auk varaaflkerfa.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel tæknifólki sem hefur áhuga á öflugum innviðum og nútímatækni.
- Rekstur, eftirlit og viðhald á vatns- og loft- kælikerfum
- Eftirlit, prófanir og viðhald varaaflskerfa
- Uppsetning, tengingar og stillingar á stjórn, og mælibúnaði
- Bilanagreining og úrlausn tæknilegra vandamála
- Taka virkan þátt í stöðugum umbótum og þróun verklags
-
Þú þarft að hafa þekkingu og reynslu af því að vinna með vatns- og loftkælikerfi. Menntun á sviði véltækni, vélstjórn, vélavirkjunar eða kælitækni kemur sér mjög vel.
- Menntun sem nýtist við rekstur vélbúnaðar
- Mikil færni í ensku við lestur og skrif
- Vinna vel í teymi og að geta glaðst með vinnufélögum
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Umbótahugarfar, öryggisvitund og þjónustulund
- Hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Íslenska
Enska










