
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Velferðarsvið: Háskólamenntaður starfsmaður í skammtímaþjónustu Þórunnarstræti 99 Akureyri
Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða háskólamenntaðan einstakling í þjónustu við fötluð börn í skammtímaþjónustuna Þórunnarstræti 99. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf þar sem unnið er í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Háskólamenntaður starfsmaður í skammtíma- og skólavistun starfar hjá velferðarsviði Akureyrarbæjar eftir hugmyndafræði valdeflingar og þjónandi leiðsagnar eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af sviðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita gestum skammtímaþjónustu einstaklingsbundinn, félagslegan stuðning og aðstoð við athafnir daglegs lífs.
- Veitir faglega ráðgjöf og stuðning við börn og starfsfólk.
- Tekur þátt í faglegri uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri þjónustu í samstarfi við forstöðumann og aðra fagaðila.
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila og aðstandendur.
- Tekur þátt í gerð þjónustuáætlana og dagsskipulags.
- Vinnur náið með forstöðumanni, deildarstjóra og öðrum fagaðilum og er leiðbeinandi við starfsfólk um fagleg vinnubrögð á starfsvettvangi.
- Tekur þátt í mótun starfseminnar.
- Tryggir mönnun vaktar skv. fyrirliggjandi þörfum.
- Tekur þátt í öllum almennum heimilisstörf.
- Tekur þátt í sí- og endurmenntun.
- Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (B.S., B.A., B.Ed ) sem nýtist í starfi, s.s. á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði.
- Hæfileika og áhugi á að starfa með fólki og góð samskiptahæfni.
- Reynsla af starfi við persónulega aðstoð og starfi með börnum er kostur og þarf að koma fram í umsókn.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Æskilegt að viðkomandi hafi unnið með fötluðu fólki og sýnt lipurð og þekkingu í fyrri störfum.
- Sveigjanleiki, samviskusemi og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu sinnar.
- Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
- Gott líkamlegt atgervi.
- Talar, skrifar og skilur vel íslensku.
- Umsækjandi þarf að hafa bílpróf.
Auglýsing birt25. júlí 2025
Umsóknarfrestur15. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Þórunnarstræti 99, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Velferðarsvið - Starfsfólk í dagdvalir aldraðra
Reykjanesbær

Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarfólk í hlutastarf.
MG Þjónustan

Óska eftir NPA aðstoðarmanneskju í 100% stöðu
NPA miðstöðin

Starfsfólk í umönnunarstörf í haust
Sóltún hjúkrunarheimili

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Forstöðumaður búsetuþjónustu og skammtímavistunar
Fjarðabyggð

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi á starfsbraut
Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir!
Landspítali