Þjónustumiðstöðvar Fjarðabyggðar
Þjónustumiðstöðvar Fjarðabyggðar
Þjónustumiðstöðvar Fjarðabyggðar

Umsjónarmaður fasteigna

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf húsvarðar á framkvæmda- og umhverfissviði. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf við umsjón og viðhald fasteigna bæjarfélagsins. Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Eftirlit og umsjón með húsnæði, búnaði og lóðum.

·         Smærra viðhald fasteigna, lóða, húsgagna og innréttinga.

·         Skráning upplýsinga og umhald þeirra vegna viðhalds á eignum.

·         Eftirlit og umsjón með rekstri á hita-, öryggis-, eldvara- og loftræstikerfum.

·         Eftirlit eldvarna.

·         Eftirlit með aðgengismálum stofnana.

·         Eftirlit með loftgæðum og umgengnismálum í stofnunum.

·         Vinna að öryggismálum og forvörnum vegna áhættu í rekstri.

·         Eftirlit og umsjón með snjómokstri og hálkueyðingu á lóðum stofnana.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Iðnmenntun sem nýtist í starfi er áskilin.

·         Meistaramenntun í iðn er kostur.

·         Þekking og reynsla af rekstri hita-, loftræsti- og öryggiskerfa er mikilvæg.

·         Reynsla af framkvæmda- og viðhaldsverkefnum er mikilvæg.

·         Reynsla af umhaldi upplýsinga um verk og tímaáætlanir er kostur.

·         Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð eru mikilvæg.

·         Hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg.

Auglýsing birt17. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar