Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Umsjónarkennari skólaárið 2024 - 2025

Hólabrekkuskóli óskar eftir umsjónarkennara frá næsta hausti,1. ágúst 2024. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.

Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi.

Ef þú ert framsækinn kennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Áhersla á teymiskennslu og kennsluaðferðir sem skila árangri.
  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og foreldra.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að jákvæðum skólabrag ásamt starfsfólki skólans.
  • Önnur afmörkuð verkefni innna skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leitað er eftir jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 samskvæmt samevrópska matskvarðanum.
  • Stundvísi og samviskusemi.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur
  • Frítt í sund með ÍTR kortinu
  • Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Auglýsing stofnuð22. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Staðsetning
Suðurhólar 10, 111 Reykjavík
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar