Við leitum að leiðbeinendum í okkar frábæra teymi á Ökrum
Leikskólinn Akrar auglýsir eftir starfsfólki í 100% starf. Við leitum að leiðbeinanda í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og allskonar fólki eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi.
Vilt þú vera með í okkar liði?
• Á Ökrum er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí
• Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna vinnustyttingar starfsfólks
• Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
• Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
• Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
• Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
• Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
• Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
• Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
• Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna
• Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
• Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
• Góð samskiptahæfni
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum