Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stig - Víðistaðaskóli

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi umsjónarkennara á yngsta stig skólans. Viðkomandi kennari bætist í góðan hóp annarra starfsmanna skólans. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda, teymisvinnu/kennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu á yngsta stigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi

Starfshlutfall er 100% og ráðið er frá og með 1. ágúst 2026.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected].

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2026.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur7. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (21)