
Sveitarfélagið Strandabyggð
Lækjarbrekka á Hólmavík er samrekinn leik-grunn- og tónskóli með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.
Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli.
Strandabyggð skiptist í Hólmavík og dreifbýlið og er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, en sömuleiðis er margt spennandi fram undan. Þá má helst nefna fyrirhugaða hótelbyggingu, atvinnuuppbyggingu, nýtt íbúðarhverfi, unnið er að endurbótum á grunn- og leikskóla og svona mætti lengi telja.

Tónlistarkennari
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir tónlistarkennara sem jafnframt mun sinna deildarstjórn. Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast almenna tónlistarkennslu og skipulag í samstarfi og samráði við skólastjórnendur
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur7. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli

Grunnskólakennari
Sveitarfélagið Strandabyggð

Vogaskóli - umsjónarkennari á miðstigi
Vogaskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennarar á miðstig, kennari í tónmennt og kennari í sköpun og tækni
Salaskóli

Íslenskukennari á unglingastigi
Landakotsskóli

Deildarstjóri í Landakotsskóla
Landakotsskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Mýrarhúsaskóli og Valhúsaskóli auglýsa stöður.
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri óskast í tímabundna stöðu
Fífusalir