Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli

Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á miðstig í 100% starf haustið 2025.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna umsjónarkennslu á miðstigi með fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið
  • Starfa samkvæmt SMT-skólafærni
  • Taka þátt í stefnumótun skólans.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á miðstigi æskileg
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor.
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Örnu B. Arnardóttur, skólastjóra í síma 664-5865 [email protected] .

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2025.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur8. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar