Landakotsskóli
Landakotsskóli
Landakotsskóli

Landakotsskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara

Landakotsskóli óskar eftir umsjónarkennara frá 1. ágúst 2025 í 50% -100% starf.

Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum. Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað hér inn á alfred.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Guðrún Júlíusdóttir, skólastjóri í síma 699 8200 og á netfangið [email protected].

Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.

Öll sem ráða sig til starfa hjá Landakotsskóla þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Landakotsskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli fyrir 1. til 10. bekk ásamt deild fimm ára barna auk frístundaheimilis. Í skólanum er íslenskudeild og alþjóðadeild. Við skólann stunda um 380 nemendur nám í tveimur deildum, annars vegar í íslenskri deild og hins vegar í alþjóðlegri deild þar sem námið fer fram á ensku. Um 50 kennarar starfa við skólann auk 30 annarra starfsmanna. Markmið skólans er að veita nemendum framúrskarandi grunnskólamenntun. Í skólanum er metnaðarfullt nám í kjarnagreinum, öflugt listnám og fjölbreytt tungumálanám. Nemenda- og kennarahópur skólans er alþjóðlegur og í skólanum er góður starfsandi, metnaður og afbragðsgott starfsfólk.

Landakotsskóli er sjálfseignarstofnun sem lýtur sérstakri stjórn. Markmið skólans er að veita nemendum framúrskarandi grunnskólamenntun. Í skólanum er metnaðarfullt nám í kjarnagreinum, öflugt listnám og fjölbreytt tungumálanám.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður.
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Áhugi á starfsþróun og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi.
  • Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og skapandi kennsluaðferðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur11. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Túngata 15, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar