Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Stærðfræðikennari á unglingastig í Salaskóla

Við leitum að góðum stærðfræðikennara í okkar frábæra starfslið í Salaskóla.

Í skólanum eru góður starfsandi og gott starfsumhverfi. Kennarar vinna saman í teymisvinnu við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu.

Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í skólastarfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk á næsta skólaári. Hjá skólanum starfa um 100 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarkennari í 10. bekk í öflugu þriggja manna kennarateymi og stærðfræðikennsla í 8.-10. bekk. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
  • Framhaldsmenntun með áherslu á stærðfræðikennslu æskileg.
  • Reynsla í kennslu stærðfræði á unglingastigi æskileg.
  • Frumkvæði og skapandi hugsun við þróun verkefna og aðlögun að ólíkum nemendahópum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, faglegur metnaður og sveigjanleiki í að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
  • Sterk samskiptahæfni og færni í að mynda jákvæð tengsl við nemendur og samstarfsfólk.
  • Þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni sem nýtist gagnvart fjölbreyttum nemendahópi og í teymisvinnu.
  • Góð teymisfærni og áhugi á að vinna þverfaglega með öðrum kennurum og starfsfólki skólans með velferð nemenda að leiðarljósi.
  • Skipulagshæfni, ábyrgð og stundvísi.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans, leggja sitt af mörkum í skólaþróun og taka virkan þátt í teymiskennslu og samstarfi innan skólasamfélagsins.
  • Geta til að kenna á íslensku og eiga samskipti við nemendur og samstarfsfólk á íslensku.
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur10. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar