

Umönnun - Skjól hjúkrunarheimili
Við erum alltaf að leita að frábæru starfsfólki í umönnun.
Starfsfólk við umönnun á hjúkrunarheimili aðstoðar við fjölbreyttar athafnir daglegs lífs til að hámarka lífsgæði íbúanna, viðhalda sjálfstæði þeirra og vellíðan.
Meginhlutverk starfsins er þrenns konar: aðhlynning, samskipti og heimilisstörf þar sem gildi heimilanna eru höfð að leiðarljósi - Virðing - Vellíðan - Virkni.
Ef þú hefur áhuga á líflegum vinnustað og gefandi starfi í umönnun þá hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um hjá Skjóli hjúkrunarheimili.
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri og hafi færni í íslensku (B1).
Um vaktavinnu er að ræða en starfshlutfall er samkomulag. Greitt er skv. kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst þar sem ráðið er í störfin jafnóðum.
- Aðstoðar með daglega umönnun skjólstæðinga og þjónustuþega heimilisins .
- Leiðbeinir og aðstoðar heimilismenn við persónulegt hreinlæti og aðrar athafnir daglegs lífs í samræmi við getu og óskir heimilismanns.
- Heldur umhverfi snyrtilegu, s.s. þvo og ganga frá þvotti, þrífa og búa um rúm.
- Sinnir reglubundnu eftirliti og svarar bjöllum.
- Þátttaka í daglegu lífi, tómstundum og þjálfun.
- Aldurstakmark er 18 ára
- Færni í íslensku - B1
- Jákvæðni
- Áreiðanleiki
- Samviskusemi
- Stundvísi
- Snyrtimennska
- Góð samskiptahæfni.
- Glaðlegt og jákvætt viðmót.
Íslenska










