Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri á Skjóli, blundar í þér stjórnandi?

Frábært tækifæri til að hefja stjórnunarferillinn. Skjól óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í 100% starf á starfsemi á tveimur deildum, 4. hæðinni og Laugaskjóli.

4 hæðin er almenn hjúkrunarheimilisdeild þar sem búa 29 einstaklingar, á deildinni er veitt sólarhringsþjónusta og rúmgóð setustofa sem sameinar ganga. Samvera og tómstundarstarf er í boði daglega fyrir einstaklinga ásamt sjúkraþjálfun.

Laugaskjól er hjúkrunarsambýli fyrir einstaklinga með heilabilun á fyrri stigum. Íbúar eru níu talsins og búa allir á einbýlum. Húsið er tveggja hæða. Íbúum þar stendur til boða öll sú þjónusta sem veitt er á Skjóli, og geta sótt viðburði sem haldnir eru.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.

Er lykilaðili í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem virðing, vellíðan og virkni eru leiðarljós í leik og starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra og í fjarveru hans.
  • Þátttaka í daglegri hjúkrun heimilismanna, sér um eftirlit og mat ágæðum hjúkrunarþjónustu.
  • Starfið felur í sér að vera staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
  • Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi.
  • Almenn hjúkrunarstörf og vaktstjórn að hluta.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
  • Færni í mannlegum samskiptum og áhugi á að takast á við nýjar áskoranir.
  • Stjórnunarreynsla er kostur en ekki skylda.
  • Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur.
  • Jákvætt viðmót og samskiptahæfni.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kleppsvegur 64, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar