Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng

Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?

Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.

Sem þjónusturáðgjafi hjá Öskju munt þú gegna lykilhlutverki í samskiptum við viðskiptavini Kia, Honda og Xpeng. Starfið felur í sér ráðgjöf, þjónustu og samvinnu við verkstæði þar sem markmiðið er að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina á öllum stigum þjónustuferlisins.

Þú verður hluti af öflugu þjónustuteymi sem leggur áherslu á fagmennsku, samstarf og lausnamiðaða þjónustu. Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, getur unnið undir álagi og leggur metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við viðskiptavini Öskju
  • Ráðgjöf og tilboðsgerð
  • Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
  • Frágangur verkbeiðna og reikningagerð
  • Eftirfylgni með þjónustuverkefnum og upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd þjónustu og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Færni í teymisvinnu og jákvætt viðmót
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér ný kerfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar