

Þjónusturáðgjafi í þjónustuveri-sumarstarf
Hefur þú brennandi áhuga á þjónustu?
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með margslungin og krefjandi verkefni unnin með frábærum samstarfsfélögum?
Við erum að leita eftir lausnamiðuðum einstaklingi í teymið okkar í þjónustuveri. Verkefni þjónustufulltrúa er bæði þjónusta og sala til viðskiptavina okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Samskipti við viðskiptavini í gegnum samskiptakerfi ELKO
• Hámarka þjónustuupplifun viðskiptavina ELKO með stefnu ELKO að leiðarljósi
• Sér til þess að svörun erinda frá viðskiptavinum sé innan ákveðinna tímamarka og að svörun sé framkvæmd eftir gæða- og þjónustustöðlum ELKO
• Sinnir úrlausnum viðgerðar- og tryggingamála
• Sér til þess að úrlausn mála séu ávallt með hagsmuni viðskiptavini í huga
• Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
Náms- og hæfniskröfur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Framhaldskólamenntun er kostur
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla í þjónustustörfum er kostur
- Góð tölvukunnátta
Við hvetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!
Tekið er vel á móti nýju starfsfólki þar sem það fær tilskylda þjálfun til þess að geta sinnt krefjandi og skemmtilegum verkefnum sem koma upp í daglegu starfi og þjónustu við viðskiptavini.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Helgi Snær Gestsson, Hópstjóri Þjónustuvers ELKO, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 5.apríl.
Íslenska










