

ELKO Keflavíkurflugvöllur - Sumarstarf
Við leitum að sumarstarfsmönnum í verslun ELKO flugstöð.
Störfin fela í sér að þjónusta viðskiptavini og finna úrlausnir fyrir þá. Viðkomandi þurfa að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.
Unnið er samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskukunnátta skilyrði
20 ára og eldri
Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu
Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Skipulagsfærni
Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
- Niðurgreiddur hádegismatur
ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Frekari upplýsingar veita Ragnar Örn Rúnarsson, [email protected] og Einar Snorri Sifjarson, [email protected]
Umsóknarfrestur til og með 6.apríl.
Íslenska










