KAPP ehf
KAPP ehf
KAPP ehf

Þjónustumaður í kæliþjónustu

Viltu vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu tæknifyrirtæki?

KAPP leitar að öflugum einstaklingi til starfa á kælisviði fyrirtækisins í Kópavogi vegna aukinna verkefna. Við leitum að vélfræðingi, vélstjóra, vélvirkja eða rafvirkja sem hefur áhuga á tæknilausnum, þjónustu og fjölbreyttum verkefnum tengdum kæli- og vélbúnaði.

Starfið felur í sér þjónustu, viðhald og uppsetningar á kæli- og vélbúnaði hjá viðskiptavinum KAPP, bæði innanlands og erlendis. Um er að ræða sjálfstætt og fjölbreytt starf þar sem reynir á fagmennsku, frumkvæði og góða samskiptahæfni.

KAPP er leiðandi tæknifyrirtæki á sviði kæliþjónustu, vélasmíði og tæknilausna fyrir sjávarútveg, fiskeldi og iðnað. Fyrirtækið hannar og framleiðir meðal annars OptimICE® kæli- og krapakerfi ásamt fjölbreyttum lausnum fyrir atvinnulífið.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Viðhald og bilanagreining á kæli- og vélbúnaði
• Fyrirbyggjandi þjónusta hjá viðskiptavinum
• Uppsetning og gangsetning á búnaði og lausnum frá KAPP
• Eftirlit og þjónusta á kælikerfum
• Heimsóknir til viðskiptavina innanlands og erlendis
• Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á þjónustusviði

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem.
• Hefur menntun eða reynslu sem vélfræðingur, vélstjóri, vélvirki eða rafvirki
• Hefur reynslu af viðhaldi, þjónustu eða uppsetningum á vél- og kælibúnaði
• Sýnir frumkvæði og vinnur sjálfstætt
• Hefur góða þjónustulund og á auðvelt með samskipti
• Er tilbúinn til ferðalaga vegna verkefna
• Hefur góða íslensku- og enskukunnáttu
• Kann vel við fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi

Fríðindi í starfi

KAPP býður,
• Fjölbreytt og spennandi starf
• Sterkt og reynslumikið teymi
• Nútímalegt og öflugt starfsumhverfi
• Tækifæri til þróunar og endurmenntunar
• Starf hjá traustu fyrirtæki í vexti

Auglýsing birt16. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Turnahvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Vélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar