
MAX1 | VÉLALAND
MAX1 I VÉLALAND veitir dekkja- og verkstæðisþjónustu fyrir flest allar tegundir bíla og býður upp á margvíslegar rafrænar lausnir við pantanir á þjónustu. MAX1 dregur nafn sitt af því markmiði okkar að klára hvern verkþátt á innan við klukkustund eftir að við hefjumst handa.
Áhersla er ávallt lögð á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum og eru öll verkstæði MAX1 I VÉLALAND aðilar að Bílgreinasambandinu.
Samstarfsaðilar okkar eru fjölmargir, dekkin koma frá finnska dekkjaframleiðandanum Nokian, smurolíurnar frá Olís, rafgeymarnir frá Exide, þurrkublöðin frá Trico og varahlutir koma ýmist beint að utan, frá bílaumboðum eða ýmsum birgjum innanlands.
Hjá MAX1 I VÉLALAND starfa vel þjálfaðir og reynslumiklir starfsmenn á starfsstöðvum sem geta veitt bílaþjónustu um allt höfuðborgarsvæðið.

Bifvélavirki fyrir Max1-Reykjavík
Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á verkstæði Max1 að Bíldshöfða 5a í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bilanagreiningu og viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum.
Við leitum að einstaklingi sem?
- Er með sveinspróf og/eða meistarapróf í bifvélavirkjun eða mikla reynslu af viðgerðum
- Er skipulagður, samviskusamur og metnaðarfullur
- Nýtur sín í krefjandi og markmiðadrifnu umhverfi
- Hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og vexti vörumerkisins Max1/Vélaland á Íslandi.
Við bjóðum uppá
- Að vinna með nýjustu bíltækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu.
- Lifandi og spennandi starf þar sem er unnið við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
- Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningu og viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 5A, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBílvélaviðgerðirFrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiStundvísiVélvirkjunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmenn í sjóeldisdeild
Arctic Fish

Pípari óskast til starfa á Akureyri
HHS verktakar ehf

Bilanagreininga snillingur í sendibílum óskast
Kraftur hf.

Vinna á verkstæði
Aflvélar ehf.

Sumarstarf vélvirkja í tæknideild
Myllan-Ora

Vélvirki/Bifvélavirki
Steypustöðin

Varahlutasnillingur - Vörubílar og Rútur
Vélanaust

Starfsmaður óskast í Þjónustumiðstöð Hrunamannahrepps
Hrunamannahreppur

Spennandi sumarstarf á Glerártorgi
Eik fasteignafélag hf.

Steypubílstjóri í Helguvík
Steypustöðin

Bilanagreiningar og forritun
IB ehf

Vélvirki
Nói Síríus