
Eik fasteignafélag hf.
Eik fasteignafélag var stofnað árið 2002. Frá stofnun hefur félagið vaxið með áherslu á fjárfestingar í helstu viðskiptakjörnum höfuðborgarinnar og er á meðal stærstu fasteignafélaga landsins. Hlutabréf félagsins eru skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. Félagið býður upp á framúrskarandi starfsaðstöðu og góðan starfsanda. Hjá félaginu starfa 38 starfsmenn með fjölbreytta menntun og reynslu á fasteignamarkaði. Markmið Eikar er að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu og bjóða húsnæðislausnir í takt við mismunandi þarfir. Sú viðleitni grundvallast á gildum félagsins: ábyrgð, drifkrafti og samvinnu.

Spennandi sumarstarf á Glerártorgi
Eik fasteignafélag leitar að öflugum og sjálfstæðum einstaklingi í starf umsjónarmanns Glerártorgs. Við leitum að manneskju sem er sjálfstæð í vinnubrögðum, lausnamiðuð og tilbúin að sjá til þess að húsið og lóðin séu í toppstandi fyrir viðskiptavini og gesti.
Um er að ræða sumarafleysingu frá byrjun júní fram í miðjan ágúst, með möguleika á áframhaldandi samstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn umsjón og daglegt eftirlit með Glerártorgi.
- Glerártorg og umhverfi þess sé ávallt snyrtilegt og að upplifun viðskiptavina sé jákvæð.
- Minniháttar viðhald, viðgerðir og önnur praktísk verkefni sem koma upp í daglegum rekstri.
- Önnur tilfallandi verkefni sem tryggja örugga og góða starfsemi hússins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gott verkvit og reynsla af praktískum störfum sem nýtast í umsjón fasteigna.
- Rík þjónustulund, góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Reynsla af viðhaldi húsnæðis er kostur.
- Góð almenn íslensku- og enskukunnátta.
- Almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Glerártorg, Gleráreyrar 1
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Húsvörður
Hagvangur

Aðstoðarmaður Umsjónarmanns
Sameignarfélag Ölfusborga

Óskum eftir starfsmanni í Sláturhúsið á Hellu
Esja Gæðafæði

Umsjónarmaður fasteigna
Brákarhlíð

Húsvörður / Handyman
Stracta Hótel

Verkstjóri
HHS verktakar ehf

Mótasmiður vanur uppsteypu
HHS verktakar ehf

Steinsmiður / Uppsetningamaður í steinsmiðju óskast!
Fígaró náttúrusteinn