Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin ehf

Þjónustu- og sölumaður

Við leitum að jákvæðum og drífandi þjónustu- og sölumanni til að sinna sölu á dekkjum og tengdum vörum til einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf með sérstakri áherslu á dekk fyrir vörubíla, stærri vélar og tæki. Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu til viðskiptavina, uppbyggingu og viðhald viðskiptasambanda og virka þátttöku í áframhaldandi vexti fyrirtækisins. Starfsstöð er hjá Dekkjahöllinni í Miðhrauni.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á bílum og tækjum sem hefur þjónustulund og góð samskiptafærni.

Dekkjahöllin er eitt öflugasta dekkjafyrirtæki landsins og hefur verið á meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo í 15 ár í röð. Fyrirtækið er umboðsaðili leiðandi framleiðenda á borð við Continental, Yokohama og Falken.

Móðurfélag Dekkjahallarinnar er Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Starfsmenn félaganna eru um 250 talsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala til fyrirtækja og einstaklinga
  • Símsvörun og tilboðsgerð
  • Móttaka viðskiptavina og úthlutun verkefna
  • Afgreiðsla og móttaka pantana
  • Umsjón með daglegri þjónustu við viðskiptavini
  • Önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
  • Reynsla úr dekkjageira eða sambærilegu starfi er kostur
  • Góð þekking og áhugi á vörum og þjónustu
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvætt viðhorf
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi

Af hverju að vinna með okkur?

  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhrauni 18
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar