

Söluráðgjafi í húsgagnadeild ILVA í Kauptúni
ILVA er glæsileg verslun með húsgögn og smávöru með rætur í Danmörku og fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi 2008. Á Íslandi eru þrjár ILVA verslanir — í Kauptúni í Garðabæ, á Norðurtorgi á Akureyri og á Selfossi.
Við erum núna að auglýsa starf söluráðgjafa í húsgagnadeild til að bæta við öfluga teymið okkar í Kauptúni.
Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi þar sem ánægja starfsfólks og viðskiptavina eru í fyrirrúmi.
• Veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf við val á húsgögnum
• Kynna og selja vörur ILVA með faglegum hætti
• Fylgjast með birgðum og sjá til þess að kynningarsvæði sé vel uppsett og aðlaðandi
• Taka þátt í uppsetningum og breytingum á sýningarsal
• Vinna með teyminu að sölumarkmiðum og framúrskarandi þjónustugæðum
• Reynsla af sölu eða þjónustu við viðskiptavini er kostur
• Áhugi á húsgögnum, innanhúshönnun eða heimilisbúnaði
• Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptahæfni
• Geta til að vinna í teymi og taka frumkvæði þar sem þörf krefur
• Mjög góð íslenskufærni í ræðu og riti
• Fullt starf í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi
• Samkeppnishæf laun og starfskjör
• Tækifæri til starfsþróunar innan fyrirtækisins
• Frábær samstarfshópur
• Starfsmannaafslátt af vörum ILVA
Íslenska










