
Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki og starfar þar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum. Okkur er ekki sama eru einkunnarorð Sensa, okkur er ekki sama um viðskiptavininn eða starfsmenn okkar.
Eigandi Sensa er SoftwareOne sem er alþjóðlegt upplýsingatæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í Swiss.

Tæknimaður í net- og öryggislausnum
Verkefnum okkar á sviði net- og öryggislausna fjölgar hratt og því leitum við að áhugasömum einstaklingi sem vill þróast í starfi og verða sérfræðingur á þessu sviði.
Starfið felur meðal annars í sér að þróa og reka netkerfi og öryggislausnir fyrir viðskiptavini okkar á Íslandi og erlendis. Verkefnin eru fjölbreytt og ná frá innri netum yfir í skýjaþjónustur, auk reksturs á eigin hýsingarneti Sensa.
Við leggjum áherslu á góð samskipti og öfluga teymisvinnu enda eru verkefnin unnin í nánu samstarfi við samstarfsfólk, viðskiptavini og aðra samstarfsaðila.
Reynsla af net- og öryggislausnum er kostur en ekki skilyrði. Mikilvægast að hafa brennandi áhuga á faginu, sýna frumkvæði og vilja til að læra og þróast.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Brennandi áhuga á netkerfum og öryggislausnum
- Góða samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og metnað til að læra og þróast
- Reynslu eða þekkingu á net- og öryggislausnum, sem er kostur
- Prófgráður frá Cisco, Fortinet eða Palo Alto, sem er einnig kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Backend Software Engineer
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana

Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Úrvinnslusjóður

Sérfræðingur í net- og öryggislausnum
Sensa ehf.

Kerfisstjóri = Geimfari
Atmos Cloud

Kerfisstjóri/netstjóri í flugleiðsöguþjónustu
Avians

Þjónustusérfæðingur
Helix Health

Hugbúnaðarsérfræðingur
Verkís

OK leitar að starfsfólki á NOC vaktborð - Hlutastarf/Helgarvaktir
OK

Technical Director
Fenris Creations

Appforritari
Sýn

Liðsstjóri Samþættingateymis
Sýn