

OK leitar að starfsfólki á NOC vaktborð - Hlutastarf/Helgarvaktir
OK leitar að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna starfi NOC-vaktmanns á miðlægri vöktunarmiðstöð félagsins.
Um er að ræða hlutastarf með mætingu á starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Umsækjandi þarf að hafa einhverja reynslu af sambærilegum störfum.
Vinnutími er að jafnaði frá kl 16:00-22:00 aðra hverja helgi ásamt tveimur virkum kvöldum í mánuði frá 16:00-22:00, auk þess sem möguleiki er á tilfallandi vöktum bæði utan og á dagvinnutíma vegna afleysinga innan teymisins.
Starfið hentar því sérstaklega einstaklingi sem hefur sveigjanleika til að taka að sér vaktir á dagvinnutíma þegar þörf krefur.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Hvað er NOC ?
NOC (Network Operations Center) er okkar 24x7 vöktunarþjónusta.
Vöktunarþjónusta felur í sér vöktun á tölvukerfum allan sólarhringinn, alla daga ársins og býr að öflugum hópi sérfræðinga, vöktunarkerfum og ferlum sem tryggja þann uppitíma sem krafist er.
-
Helgar (16:00-22:00) og tvö virk kvöld (16:00-22:00)- ásamt möguleika á tilfallandi vöktum, bæði utan og á dagvinnutíma
-
Umsýsla kerfa, útstöðva og annarra jaðartækja
-
Úrvinnsla verkbeiðna
-
Þjónusta við notendur
-
Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af beiðnakerfum, flokkun beiðna og notendaþjónustu
- Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er nauðsyn
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Mjög góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
🚲 Líkamsræktarstyrkur til að styðja við heilsusamlegum líffsstíl
🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
🥗 Matur á staðnum ásamt grænkerakostum
💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags
🏆 Starfaðu hjá margverðlaunuðu fyrirmyndarfyrirtæki
Íslenska
Enska






