
dk hugbúnaður ehf.
dk hefur selt einn vinsælasta viðskiptahugbúnað landsins í yfir aldarfjórðung, alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sem er þróað á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður.
Í dag eru notendur dk hugbúnaðar hérlendis um 11.000, úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört. Hýsingarþjónusta dk er ein sú stærsta á landinu í dag og eru yfir 31.000 fyrirtæki í hýsingu hjá dk hugbúnaði.
Hjá dk starfar samheldinn hópur fólks við þróun og þjónustu viðskiptalausna. Starfsfólk dk býr yfir miklum styrkleikum og um árabil hefur dk fengið viðurkenningar sem Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo, Framúrskarandi fyrirtæki í rekstri Keldunnar og Viðskiptablaðsins ásamt því að fá viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar síðastliðin þrjú ár.
Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta sín og þróast í starfi. Nánari upplýsingar um dk má finna á www.dk.is.
dk er í eigu TSS (Total Specific Solutions), sem er með yfir 185 fyrirtæki í heiminum í dag í 32 löndum. Fyrirtæki í eigu TSS á Norðurlöndunum eru í dag 19 og þar af 2 á Íslandi.

Kjarnakerfisstjóri í hýsingarteymi
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum Kjarnakerfisstjóra til að ganga til liðs við hýsingarsvið dk hugbúnaðar. Starfið felur í sér ábyrgð á rekstri, uppsetningu og viðhaldi kjarnakerfa og hýsingarumhverfis fyrirtækisins, auk þess að tryggja stöðugan og öruggan rekstur þjónustulausna okkar.
dk býður upp á heildarlausnir í hýsingarþjónustu og yfir 31.000 fyrirtæki eru í hýsingu hjá dk hugbúnaði. Í dag er hýsingarþjónusta dk hugbúnaðar ein sú stærsta á landinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og þróun innviða, hýsingar og lykilkerfa dk
- Umsjón með Microsoft umhverfi, netkerfum og sýndarvæðingu
- Innleiðing nýrra tæknilausna og sjálfvirknivæðing rekstrarferla
- Umsjón með upplýsingaöryggi, afritunum og rekstrarvöktun
- Leiðsögn, ráðgjöf og þekkingarmiðlun innan teymis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í rekstri upplýsingakerfa
- Traust reynsla af Microsoft umhverfum, netkerfum og innviðum
- Þekking á skýjalausnum, sýndarvæðingu og sjálfvirknivæðingu
- Góð þekking á upplýsingaöryggi og rekstrarumhverfum
- Tæknivottanir og reynsla af Fortinet, UniFi eða sambærilegum lausnum er kostur
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu tækniumhverfi
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
- Frábæran vinnustað með metnaðarfullu starfsfólki
- Sveigjanlegt og nútímalegt vinnuumhverfi
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ArubaAWSAzureFortinetMicrosoft 365UnifiWindows
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Technical Director
Fenris Creations

Sérfræðingur í þróun notendalausna
Advania

Upplýsingatæknideild - Kerfisstjóri
Reykjanesbær

Appforritari
Sýn

Liðsstjóri Samþættingateymis
Sýn

Ert þú tæknimaðurinn sem aðrir leita til þegar ekkert virkar?
Örugg afritun

Data Product Manager | Vörustjóri gagna
Bláa Lónið

Innviðir framtíðarinnar - Sérfræðingar í gagnaverum á Blönduósi og í Keflavík
Ofar ehf

Tæknimanneskja í Framlínuþjónustu
OK

Technical Documentation & Drawings Lead
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur í Microsoft 365 skýja- og öryggislausnum
Advania

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania