Advania
Advania
Advania

Sérfræðingur í Microsoft 365 skýja- og öryggislausnum

Rekstrarlausnir Advania leitar að hæfileikaríkum og metnaðarfullum leiðandi sérfræðingi í Microsoft 365 skýja- og öryggislausnum til að starfa í sérfræði- og þróunarteymi fyrirtækisins.

Deildin er skipuð fjölbreyttum hópi sérfræðinga með mismunandi tæknilegar áherslur, sem sinna verkefnum tengdum Azure, Microsoft 365 og öryggismálum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Lausnamiðuð ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini og stjórnendur.
  • Ráðgjöf eða úrlausn á flóknari vandamálum og stuðningur við aðrar deildir innan Advania.
  • Framþróun og nýsköpun á lausnum fyrir Advania og viðskiptavini.
  • Tæknilega krefjandi sérverkefni tengd skýja- og öryggislausnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • 5+ ára reynsla af starfi í kerfisstjórnun eða tengdu fagi.
  • Vottuð þekking eða nám tengt starfinu.
  • Þekking á Microsoft 365, stjórnun og innleiðingu skýjalausna (t.d. Entra ID, Intune, SharePoint, Teams) og tengdum öryggisstillingum (t.d. Conditional Access, Defender for Office, Purview)
  • Reynsla af hönnun og innleiðingu öryggisstefnu og bestu venja (best practices) í skýjaumhverfum.
  • Góð enskukunnátta
  • Auðvelt með að tileinka sér nýja hluti og vinna eftir ferlum
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hóp
  • Framúrskarandi þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
  • Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Austursíða 6, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar