
Verkís
Hjá Verkís starfa um 400 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Við leitum að öflugum liðsauka í tölvuþjónustu Verkís. Tölvuþjónustan ber meðal annars ábyrgð á rekstri og viðhaldi notendaþjónustu, hugbúnaði, netþjónum og skýjalausnum Verkís.
Við leitum eftir jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og metnaði í starfi og á auðvelt með að tileinka sér nýjungar.
Helstu verkefni snúa að rekstri og viðhaldi Sharepoint, Power Platform, skjalastjórnunarkerfis, CRM- og ERP kerfa. Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í samþættingu og sjálfvirknivæðingu kerfa stofunnar ásamt ráðgjöf til stjórnenda við val á tæknilegum útfærslum og samþættingu kerfa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun
- Þekking á rekstri skýjaumhverfa
- Reynsla af notkun gagnagrunna
- Þekking á forritunarmálum
- Þekking á virkni API-viðmóta
- Góð tæknileg yfirsýn og skipulagshæfni
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í hópi
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
TölvunarfræðingurVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



