

Kerfisstjóri = Geimfari
Hjá Atmos Cloud eru kerfisstjórar geimfarar. Eins og í geimferðum má ekkert út af bregða, allt þarf að vera hárnákvæmt, útpælt og 100% öruggt. Við tengjum saman djúpa tækniþekkingu og leifturhraða svo allt fljúgi snurðulaust.
Við fórum af stað í skýjunum, en í dag stýrum við öllu frá on-prem innviðum og M365/Azure, yfir í sjálfvirkni og gervigreind. Við leggjum mikla áherslu á öryggi og gæði, en leitum að fólki sem nýtir sjálfvirkni frekar en að vinna sama handvirka verkefnið aftur og aftur.
Við leitum að aðila sem getur tekið stjórnina á stórum hluta tæknilandslagsins. En þar sem við erum geimfarar en ekki geimverur (með fimm hendur!), erum við líka alveg til í tvo geimfara með góða verkaskiptingu.
Hlutverkin í geimskipinu:
-
Kerfisstjórnun og traustur rekstur: Daglegur rekstur, eftirlit og viðhald á tækniumhverfi viðskiptavina okkar (M365, Azure og hybrid/on-prem lausnum).
-
AI í daglegu starfi: Gervigreind er nýtt af fimi sem eðlilegur vinnufélagi – hvort sem það er til að hraða úrlausn tæknilegra mála, fínpússa PowerShell-skriftur eða finna snjallari leiðir til að stýra og sjálfvirknivæða skýjaumhverfi. Það er mikill kostur að vera fljótur að tileinka sér nýjustu tólin og líkönin á markaðnum hverju sinni.
-
Sjálfvirknivæðing (Automation): Að finna leiðir til að útrýma endurtekningum í verkefnum. API tengingar og sjálfvirknivæða ferla.
-
Öryggi og eftirlit: Tryggja að kerfi séu uppfærð, örugg og fylgi bestu starfsháttum (Best Practices).
-
Þjónusta og ráðgjöf: Aðstoða viðskiptavini okkar við að finna réttu lausnirnar og útskýra flókna tækni á mannamáli, enga geimlensku hér.
Við höfum tölvuleikjahetjur, hlaupara, fjalla- og veghjólara, skíðamenn, fluguveiði-amature-a, ræktarunnendur, hestafólk, sundgarpa og kokka. Öll eigum við það sameiginlegt að vera hamingjusamt fjölskyldufólk sem hlakkar til að fá nýjan vin í hópinn.
-
Sveigjanlegur vinnutími.
-
Hvatakerfi.
-
Heima internet og farsími.
-
Frábæra vinnuaðstaða í Ármúlanum með kaffi, drykkjum og snakki í úrvalsflokki.
-
Niðurgreiddur hádegismatur.
-
Reynsla af kerfisstjórnun: Víðtæk og traust þekking á Microsoft 365 og Azure (reynsla úr MSP umhverfi er mikill kostur).
-
AI-læsi: Þú fylgist vel með þróuninni í AI málum og vinnur með þessi tól daglega í þinni kerfisstjórnun.
-
Sjálfvirkni-genið: Góð þekking á PowerShell, Power platform, Terraform, API tengingum eða öðrum sjálfvirknilausnum.
-
Lausnamiðuð samskipti: Þú getur miðlað tæknilegum lausnum á skýran og þægilegan hátt án þess að missa fólk út í geim.
-
Eldmóður og jákvæðni: Brosið er gjaldmiðill sem hvergi fellur í verði, þú mætir til leiks með góða lund, frumkvæði og vilja til að gera hlutina betur í dag en í gær.
-
Bílpróf og bíll: Fyrir lendingar á staðnum hjá viðskiptavinum.
- Önnur menntun: Allt sem nýtist á jörðu sem og í geimnum.
Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki þar sem traust og áreiðanleiki eru í fyrirrúmi. Við erum geimfarar, ekki geimverur – hjá okkur hafa allir rödd og við leggjum mikið upp úr léttleika og góðri þjónustu.
Íslenska
Enska










