Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða matreiðslumann

Leitað er að öflugum matreiðslumanni til að matreiða fjölbreyttan og heilsusamlegan hádegismat fyrir starfsfólk.

Markmið með rekstri mötuneytis er að sem flestir starfsmenn borði þar daglega. Til að ná því markmiði útbúa matreiðslumaður og aðstoðarmaður hollan og fjölbreyttan mat sem unninn er frá grunni, mat sem uppfyllir lýðheilsumarkmið embættis landlæknis og höfðar til sem flestra starfsmanna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón, rekstur og skipulagning mötuneytis 
  • Undirbúningur, skipulag og framreiðsla máltíða og annarra veitinga 
  • Dagleg verkstjórn aðstoðarmanns 
  • Innkaup og rekstur mötuneytis á sem hagkvæmastan hátt
  • Fylgjast með þróun og breytingum á sviði matseldar 
  • Að aðstæður og búnaður í eldhúsi og matsal séu í samræmi við kröfur um hollustuhætti, hreinlæti og aðrar reglur sem um slíka starfsemi gilda 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matartæknanám skilyrði, sveinspróf eða meistarapróf í matreiðslu æskilegt
  • Reynsla af rekstri eldhúss fyrir stóra hópa 
  • Fagleg vinnubrögð og skipulagshæfni 
  • Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum 
  • Snyrtimennska 
  • Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur 
  • Sjálfstæði, útsjónarsemi 
  • Almenn tölvukunnátta 
  • Íslenskukunnátta 
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Matreiðsluiðn
Starfsgreinar
Starfsmerkingar